Fréttir
Aðildarríki EPO 36
Þann 1. júlí sl. gerðist San Marino aðili að EPO. Eru aðildarríkin því orðin 36 en auk allra 27 ríkja Evrópusambandsins eru Ísland, Noregur, Liechtenstein, Monaco, Sviss, Króatía, Tyrkland, Makedónía og nú San Marino aðilar að EPO.
Alls fullgilda 39 ríki nú Evrópsk einkaleyfi því auk aðildarríkjanna 36 eru EP-einkaleyfi viðurkennd í Albaníu, Bosníu-Herzegovinu og Serbíu.
