Fréttir

Umsóknarfjöldi 1. júlí 2009

Síðustu 6 mánuði hafa borist alls 1722 vörumerkjaumsóknir. Alþjóðlegar umsóknir eru 1224 og landsbundnar 498. Um er að ræða talsverða fækkun frá árinu 2008. Á sama tíma í fyrra höfðu borist 2250 umsóknir og er því samdrátturinn yfir 23%.

Landsbundnar einkaleyfisumsóknir eru 36, yfirfærðar alþjóðlegar umsóknir (PCT) eru 15 talsins og alþjóðlegar grunnumsóknir eru 4.

Þá hafa verið staðfest 198 evrópsk einkaleyfi á þessu ári.

Afar jákvætt er að landsbundnum umsóknum hefur fjölgað talsvert á þessu ári, eða 36 nú miðað við 26 á sama tíma í fyrra. Mikil fjölgun er einnig í staðfestum evrópskum einkaleyfum, eða úr 89 í 198. En hinsvegar hefur alþjóðlegum grunnumsóknum fækkað úr 14 í 4 á þessu ári.

Tala yfirfærðra alþjóðlegra umsókna er nánast óbreytt.


Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica