Ný einkaleyfaskrá
Ný einkaleyfaskrá hefur verið tekin í notkun á Einkaleyfastofunni – ELÍS. Skráin er sérsmíðuð og byggir á fríum hugbúnaði, en að smíðinni hefur unnið Hafsteinn Þór Einarsson, B.S. í hugbúnaðarverkfræði. Virkni skrárinnar er mjög bætt, miðað við þá eldri, sem var búin að þjóna stofnuninni í um tvo áratugi og byggði á Macintosh-umhverfi (Helix).
Með aukinni sjálfvirkni, verður nú öll meðhöndlun umsókna og einkaleyfa mun öruggari. Einkaleyfastofan sendir reglulega gögn til Evrópsku einkaleyfastofnunarinnar auk þess sem sækja þarf gögn þangað um evrópskar einkaleyfisumsóknir sem taka til Íslands og verður sá gagnaflutningur nú auðveldari. Þá mun skráin einnig opna fyrir möguleikann á rafrænni meðhöndlun umsókna og tenging við rafrænt skjalavistunarkerfi stofnunarinnar verður möguleg.
Þess er vonandi ekki langt að bíða, að hægt verði að birta opinberar upplýsingar úr skránni á heimasíðu stofnunarinnar, og gera viðskiptavinum þannig kleift að leita í skránni uppá eigin spýtur.
