Fréttir
Fjölgun einkaleyfaumsókna frá íslenskum aðilum
Þegar skoðaður er fjöldi einkaleyfaumsókna frá innlendum aðilum fyrstu fjóra mánuði þessa árs og borin saman við fjöldann á sama tíma á síðasta ári, kemur í ljós 29% aukning. Þó að ekki sé um háar tölur að ræða, verða þetta að teljast afar góðar fréttir.
Umsóknirnar eru af ýmsum toga og er enginn sérstakur flokkur uppfinninga sem sker sig úr. Á þessu sama tímabili hafa einnig verið birtar 20 PCT umsóknir í eigu íslenskra aðila, af þeim eru þrjár sem byggja á íslenskum forgangsrétti.
