Fréttir

Breytingar á esp@cenet o.fl.

 

Á síðasta ári gerði Evrópska einkaleyfastofan (EPO) ýmsar breytingar á gagnagrunnum sínum og aðgangi að þeim. Þar má helst nefna nýja leitarmöguleika í esp@cenet eða svokallaða „SmartSearch“ leit, upplýsingar um árgjöld og nýjan hugbúnað ESPACE Global Patent Index (GPI).

Með SmartSearch var leit í esp@cenet gerð auðveldari og meira til samræmis við þær leitarvélar sem almenningur þekkir.  Ekki þarf lengur að velja forsendur til að leita eftir heldur birtist nú einn gluggi þar sem hægt er að setja inn bæði nöfn og númer og forma flóknari leit. Ítarleit mun áfram vera í boði fyrir þá sem þess óska.

Upplýsingar um greiðslur árgjalda EP-einkaleyfa í aðildarríkjunum má nú finna í gagnagrunnum EPO, þ.á m. árgjöld greidd á Íslandi. Um er að ræða mikilvæga breytingu sem auðveldar notendum yfirsýn yfir EP-einkaleyfi í gildi. Upplýsingarnar eru uppfærðar mánaðarlega og sýna í hvaða aðildarríkjum árgjöld hafa verið greidd.

GPI sameinar kosti MIMOSA leitarhugbúnaðarins og þann fjölda gagna sem aðgengilegur er á netinu. GPI gerir notendum kleift að leita í bókfræðilegum gögnum, sækja viðbótarupplýsingar í gegnum Open Patent Services (OPS) og tengja við skjöl í esp@cenet. Markhópur GPI eru reynslumiklir notendur. 

OPS er vefþjónusta sem gefur notendum aðgang að sömu gögnum og esp@cenet nema gögnin eru á tölvulesanlegu formi (machine to machine). Nýjasta uppfærsla á OPS gerir utanaðkomandi aðilum kleift að útbúa sitt eigið leitarviðmót til að sækja gögn úr alþjóðlegum gagnagrunni EPO.


Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica