Fréttir

Flýtimeðferð einkaleyfa (Patent Procecution Highway)

 

„Patent Procecution Highway“ eða flýtimeðferð einkaleyfa er fyrirkomulag sem mikið hefur verið rætt á alþjóðlegum vettvangi undanfarið.  Fyrirkomulagið sem nefna má „einkaleyfahraðbraut“ er nokkurs konar gagnkvæmt viðurkenningarkerfi á nýnæmisrannsóknum og byggir á tvíhliða samninga milli ríkja, án miðstýringar eða stofnunar. Í stuttu máli er í samningunum kveðið á um að viðkomandi ríki munu virða ákvörðun hvors annars um að nýnæmisrannsókn sem framkvæmd hafi verið geti verið grundvöllur einkaleyfis án frekari rannsókna.

 

Hugsunin að baki fyrirkomulaginu er að takmarka tvíverknað í rannsóknum og flýta veitingu einkaleyfa. Rannsóknir á nýnæmi uppfinningar eru  framkvæmdar víða um heim og oft er sama uppfinningin því rannsökuð af mörgum rannsóknaraðilum. Ýmislegt hefur verið gert til að takmarka slíkan tvíverknað og er Samstarfssáttmálinn um einkaleyfi (Patent Cooperation Treaty, PCT) gott dæmi um það. Undanfarin ár hefur einkaleyfisumsóknum þó fjölgað gífurlega með þeim afleiðingum að rannsóknaraðilar hafa ekki undan. Nú er svo komið að miklar tafir eru á rannsóknum sem aftur tefur mjög veitingu einkaleyfa.

           

Kostirnir við þetta fyrirkomulag eru fyrst og fremst mun hraðari meðferð. Jafnframt minnkar kostnaður umsækjanda verulega. Ljóst er þó að  þessi leið hentar ekki öllum m.a. þar sem mjög mismunandi er eftir tæknisviðum hvort sóst sé eftir hraðri meðferð við veitingu einkaleyfa eða ekki.

 

Í fyrstu var um tilraunarverkefni að ræða  sem stóð yfir á árinu 2007. Í byrjun árs 2009 var ákveðið að halda áfram fyrirkomulaginu þar sem undirtektir voru góðar. Þau ríki sem nú eru aðilar að slíkum samningum, einum eða fleirum,  eru: Evrópska einkaleyfastofan (EPO), Bandaríkin, Japan, Kanada, Kórea, Ástralía, Þýskaland, Bretland, Danmörk og Singapúr.

 

Á heimasíðum ríkjanna má finna nánari upplýsingar „Patent Procecution Highway“.


Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica