Fréttir

Námskeið á vegum EPO fyrir dómara um málarekstur í einkaleyfamálum

Dagana 15. og 16. maí sl. var haldið námskeið fyrir dómara varðandi málsmeðferð í einkaleyfamálum. Námskeiðið var haldið á vegum Evrópsku einkaleyfaakademíunnar og Einkaleyfastofu á Grand Hótel Reykjavík. Námskeiðið bar yfirskriftina „Patent litigation and procedures – IP training for national judges seminar series“. Námskeiðið sóttu dómarar frá átta löndum, formaður áfrýjunarnefndar hugverkaréttinda á sviði iðnaðar á Íslandi ásamt fulltrúa frá embætti ríkissaksóknara.

Námskeiðið var jafnt í formi fyrirlestra og verklegra æfinga. Fyrirlesarar voru:

Dr Gillian Davies, lögmaður hjá Hogarth Chambers í London. Efni fyrirlestrar hennar var The Importance of Intellectual property, in particular patents, to innovation and economic growth.

Dr Massimo Scuffi, dómari við Hæstarétt Ítalíu. Fyrirlestur hans bar yfirskriftina Update on European Developments og fjallaði hann þar m.a. um hugmyndir að samræmdri málsmeðferð í einkaleyfamálum og sameiginlegum dómstól.

Antonio Aulló Navarro, rannsakandi hjá EPO. Í fyrirlestri hans, Patent Granting Procedure and Pantentability Requirements in Europe, var farið yfir rannsóknir einkaleyfisumsókna, þær kröfur sem gerðar eru til einkaleyfa o.fl.

Dr Sabine Rojhan, lögmaður hjá Taylor Wessing í München, fjallaði um verndarumfang skv. 69. gr. EPC í fyrirlestri sínum The Scope of Protection: Article 69 EPC. Í fyrirlestrinum var einkum komið inn á túlkun einkaleyfiskrafna og jafngildiskenninguna (e. Doctrine of Equivalents).

Professor Jan Brinkhof, lögmaður og fyrrum dómari við áfrýjunardómstólinn í Haag, fjallaði um varnir í einkaleyfamálum í fyrirlestri sínum, Defences for national judges, þ.á m. eldri rétt, ógildingu einkaleyfa og tæmingu réttinda.

Dr Klaus Grabinski, dómari við héraðsdómstól Düsseldorf fjallaði um tilskipun Evrópusambandsins um framfylgni réttinda (e. Enforcement Directive) í fyrirlestri sínum The Enforcement Directive and how it affects patent infringement proceedings.

Benedikt Bogason, dómstjóri við héraðsdómstól Vesturlands fjallaði um hið íslenska sjónarhorn varðandi framfylgni réttinda, einkum lög nr. 53/2006 um öflun sönnunargagna vegna ætlaðra brota á hugverkaréttindum.

 

Á námskeiðinu voru sett upp sýndarréttarhöld vegna brots á einkaleyfi. Málið dæmdi Dr. Dieter Brändle, dómari við verslunardómstól Zürich, en lögmenn voru Prof. Jan Brinkhof, lögmaður og fyrrum dómari við áfrýjunardómstólinn í Haag og Dr. Thomas Adam, lögmaður hjá Howrey LLP í München.


Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica