Fréttir

Uppfinningamaður Evrópu, árið 2009

Val á uppfinningamanni Evrópu var tilkynnt á verðlaunahátíð í Prag nú nýverið.

Verðlaun eru veitt í fjórum flokkum sem eru; iðnaður, smá og meðalstór fyrirtæki, uppfinningamaður utan Evrópu og ævi framlag. Alþjóðleg dómnefnd sérfræðinga velur verðlaunahafana úr stórum hóp uppfinningamanna.

Tvenn verðlaunanna voru nú veitt fyrir uppfinningar á sviði orkumála. Fyrir sitt ævi framlag fékk  Adolf Goetzberger verðlaun fyrir  verk sín á sviði sólarorku og Jospeh Le Mer fékk verðlaun í flokki smárra og meðalstórra fyrirtækja fyrir lausnir í varmatækni.

Hin tvö verðlaunina voru veitt fyrir uppfinningar á sviði lyfja. Annars vegar fékk Jurg Zimmermann verðlaun fyrir lyf er vinnur gegn langvinnu mergfrumuhvítbæði og hins vegar fékk Zhou Yiqing fyrir vinnu við lyf gegn malaríu.

Sjá nánar á www.epo.org.


Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica