Fréttir

Alþjóðlegur dagur hugverkaréttar 26. apríl 2009

Einkaleyfastofan fagnaði alþjóðlegum degi hugverkaréttar, 26. apríl, með öðrum hætti en undanfarin ár.  Í stað þess að bjóða til opinna kynninga um málefni er varða vernd hugverka heimsóttu sex starfsmenn Einkaleyfastofunnar ríflega 400 þátttakendur á námskeiðinu Nýsköpun og stofnun fyrirtækja í Háskólanum í Reykjavík. Þar var nemendum kynnt starfsemi Einkaleyfastofunnar og mikilvægi hugverkaréttar.  Heimsóknin var farin 28. apríl.  Þá fengu nemendurnir afhentan bæklinginn “Auðkenni fyrirtækja, Hagnýtar leiðbeiningar um helstu skráningar” sem Einkaleyfastofan gaf út nýverið.

Dagurinn heppnaðist mjög vel.  Nemendur spurðu margra spurninga og ljóst að þeim fannst efnið bæði fróðlegt og skemmtilegt.  


Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica