Fréttir
Auðkenni fyrirtækja - hagnýtar leiðbeiningar um skráningar
Einkaleyfastofan hefur gefið út bæklinginn „Auðkenni fyrirtækja, hagnýtar leiðbeiningar um skráningar“. Hlutverk bæklingsins er m.a. að hvetja aðila til að undirbúa stofnun fyrirtækja með réttum hætti og veita upplýsingar um helstu skráningaraðila og hvar þá er að finna. Bæklingur sem þessi hefur ekki áður verið gefinn út á íslensku og er þess vænst að hann muni reynast mörgum gagnleg samantekt þegar kemur að stofnun fyrirtækja.
Bæklinginn má nálgast rafrænt á vefsíðu Einkaleyfastofunnar, eða á skrifstofu stofnunarinnar að Engjateigi 3.
