Fréttir
Evrópska einkaleyfastofan veitir aðgang að IPscore, hugbúnaði til að meta einkaleyfi
IPscore var upphaflega þróað af dönsku einkaleyfastofunni og síðar keypt af EPO. EPO hefur nú gert hugbúnaðinn aðgengilegan á heimasíðu sinni, þar sem áhugasamir geta sótt hann án endurgjalds.
Með IPscore er hægt að:
- skoða einkaleyfasafn fyrirtækisins
- greina virði einstakra einkaleyfa
- nýta einkaleyfi sem viðskiptatæki á sem bestan máta
- samræma stefnu í einkaleyfamálum við heildarstefnu fyrirtækisins
- greina tækifæri og áhættur
Hugbúnaðurinn notar 40 þætti til að meta hvert einkaleyfi og setur upp niðurstöður í skýringamyndir. Niðurstöður greiningar eru vistaðar í gagnabanka.
Á heimasíðu EPO má finna stutta kynningu um „Patent portfolio management with IPscore“. EPO mun jafnframt standa fyrir tveggja daga námskeiði sem og netnámskeiði um notkun IPsore.
Á heimasíðu EPO má nálgast hugbúnaðinn og allar nánari upplýsingar.
