Fréttir
2008 metár í alþjóðlegum vörumerkjaskráningum hjá WIPO
Ríflega 42.000 umsóknir um alþjóðlega skráningu vörumerkja bárust Alþjóðahugverkastofnuninni, WIPO, á árinu 2008. Um er að ræða umsóknir í gegnum Madrid-kerfið, alþjóðlegt skráningarkerfi vörumerkja sem 84 ríki eiga aðild að. Aldrei hafa fleiri umsóknir borist í gegnum kerfið og nemur aukningin 5,3% frá árinu 2007.
Mikil aukning var í fjölda umsókna á fyrstu 6 mánuðum ársins en heldur hægði á umsóknafjöldanum á seinni hluta ársins.
Sjá nánar hér.
