Fréttir

Umsóknar- og skráningarfjöldi árið 2008

Á árinu 2008 voru lagðar inn 4652 vörumerkjaumsóknir, þar af 3447 alþjóðlegar. Er þetta nánast sami umsóknarfjöldi og árið 2007 en þá bárust alls 4636 umsóknir.
Heldur færri vörumerki voru skráð árið 2008 en árið á undan eða 4533 á móti 4759 árið 2007.

Einkaleyfisumsóknum fækkaði á milli ára en alls voru lagðar inn 79 umsóknir á móti 114 á árinu 2007. Íslenskum grunnumsóknum fækkaði nokkuð en þær voru 54 á árinu 2008 en 64 á árinu 2007.
Alls voru 163 einkaleyfi veitt á árinu 2008. Mikil aukning var á EP staðfestingum á milli ára en árið 2008 bárust 275 EP staðfestingar á móti 70 árið 2007.

Hönnunarumsóknum fjölgaði um 37% á milli ára en alls voru lagðar inn 91 umsóknir árið 2008 á móti 57 umsóknum á árinu 2006. Alls voru skráðar 86 hannanir á árinu, þar af 51 alþjóðleg.


Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica