Fréttir

Uppúr skúffunum 2008

Föstudaginn 21. nóvember sl. voru kynnt úrslit í árlegri hagnýtingarsamkeppni Háskóla Íslands, Uppúr skúffunum. Samkeppnin er styrkt af Einkaleyfastofunni og Árnason|Faktor. Samkeppnin var nú haldin í tíunda skipti og á sama tíma var haldið upp á 20 ára afmæli Tæknigarðs. Tæknigarður hefur frá upphafi verið miðstöð hagnýtingar vísinda hér á landi.

Tólf tillögur bárust að þessu sinni og voru þrjár þeirra verðlaunaðar. Fyrstu verðlaun hlaut að þessu sinni tillaga sem unnin var í samvinnu sjúkraþjálfunar- og verkfræðideildar. Þrír nemendur, tveir frá verkfræðideild, Andri Ingvason og Bjarki Már Elísaon, og einn úr sjúkraþjálfun, Jóna Guðný Artúrsdóttir, unnu verkið undir leiðsögn dr. Karls S. Guðmundssonar dósents í verkfræði, dr. Fjólu Jónsdóttur prófessors í verkfræði og Þorbjörgu Guðjónsdóttur lektors í sjúkraþjálfun. Tillagan nefnist "Gönguhermir". Þetta er upphafsþróun að tæki sem ætlað er fyrir mikið hreyfihömluð börn. Börnin standa í tækinu og það hreyfir fætur þeirra í mynstri sem líkist ganghreyfingum. Við það fæst þungi á beinin og hugsanlega ná börnin að virkja vöðva í fótum. Þannig er hægt er að viðhalda beinþéttni og jafnvel vöðvastyrk. Hreyfingin hefur auk þess góð áhrif á líkamlegt úthald. Gert er ráð fyrir að tækið verði með nokkra stillimöguleika þannig að það henti hverju barni fyrir sig og hægt sé að nota það heima eða í skóla.

Önnur verðlaun, tillaga Örnu Harðardóttur ber nefnið "Stöðluð skráning meðferða í sjúkraþjálfun" og byggir á meistararitgerð sem Arna birti vorið 2007. Nafnið ber meira í sér en orðanna hljóðan. Bakvið skráninguna liggur nákvæm lýsing meðferða sem allir sjúkraþjálfarar skilja á aðeins einn veg. Þetta hefur tíðkast lengi í læknisfræði, en mun vera í fyrsta skipti sem sömu aðferð er beitt í sjúkraþjálfun.

Tillaga dr. Ólínu Þorvarðardóttur "Spánverjavígin 1615 - sögusafn og söguslóð" hlaut þriðju verðlaun. Hugmyndin byggir á hinum illræmdu vígum spænskra fiskimanna 1615 á Vestfjörðum. Eins og nafnið bendir til er hugmyndin að byggja upp safn um þessa atburði á norðanverðum Vestfjörðum, heimamönnum jafnt sem aðkomnum til fræðslu og vonandi frekari skoðunar á sögu svæðisinns.


Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica