Fréttir

Þríhliða viðræður EPO, Japan og Bandaríkjanna um einkaleyfi

Í áraráðir hafa evrópska, bandaríska og japanska einkaleyfastofan unnið saman að samræmingu í einkaleyfamálum. Nú nýverið funduðu stofnanirnar í 26. skipti hjá evrópsku einkaleyfastofunni (EPO) í Haag.

Meginefni fundarins var þörf notenda fyrir traust einkaleyfakerfi og hvert hlutverk PCT sáttmálans væri að þessu leyti. Meðal frummælenda voru Tony Rollins frá Business Europe, sem starfar hjá Merck, David Kappos sem starfar hjá IBM, Hirohiko Usui formaður Japönsku hugverkasamtakana (JIPA), Alison Brimlow forseti EPO, Jon Dudas forstjóri USPTO, Takashi Suzuki forstjóri JPO, Francis Gurry aðalframkvæmdastjóri WIPO, Steven W.Miller formaður IPO sem starfar hjá Proctor & Gamble Co. og Todd Dickinson frá AIPLA.

Fyrirlesarar og þátttakendur í umræðunum voru sammála um að mikil aukning umsókna um allan heim og fjöldi órannsakaðra umsókna kallaði á aðgerðir sem fyrst. Einnig voru aðilar sammála um að þörf væri á alþjóðasamræmingu á sviði einkaleyfa og að PCT kerfið væri það kerfi sem skynsamlegast væri að nota.

Þá var mikið rætt um svonefnt PPH "Patent prosecution highway" sem Bandaríkjamenn, Japanir og Bretar byrjuðu með sem tilraunaverkefni árið 2007, en fór í vinnslu í janúar sl. Um er að ræða tvíhliða samninga milli nokkurra ríkja (ekki alþjóðasamning) sem gerir einkaleyfastofum/ríkjum kleift að nýta rannsóknarniðurstöður annarra. Ef niðurstaða í rannsókn á einkaleyfisumsókn hefur verið jákvæð er hægt að óska eftir að sú niðurstaða verði nýtt í öðru samningsríki og flýta þannig fyrir rannsókn og meðhöndlun einkaleyfisumsókna. Enn sem komið er hafa tiltölulega fáir umsækjendur nýtt sér þessa leið í þeim löndum sem eru aðilar að einhverjum slíkum samningum. Forstjórar USPTO og JPO hafa hins vegar mikla trú á þessari leið og telja að hún eigi eftir að verða meira notuð. Margir notendur bentu á ýmsa galla á fyrirkomulaginu og margir töldu að vænlegri kost að vinna að úrbótum á PCT kerfinu.

Þess má geta að Danir hafa undirritað PPH samninga við Japan, Kóreu og Bandaríkin.


Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica