Fréttir

WIPO varar við greiðslubeiðnum

Samkvæmt Alþjóðahugverkastofnuninni (WIPO) hafa ýmsir PCT umsækjendur og umboðsmenn fengið sendar greiðslubeiðnir sem við fyrstu sýn virðast tengjast WIPO eða meðhöndlun PCT umsókna. Beiðnirnar tilgreina oft tiltekna PCT umsókn; birtingarnúmer (t.d. WO 02 xxxxxx), birtingardag og heiti uppfinningar. WIPO vill ítreka að þessar greiðslubeiðnir tengjast ekki WIPO eða meðhöndlun PCT umsókna hjá stofnuninni.
 
WIPO birtir allar PCT umsóknir að liðnum 18 mánuðum frá forgangsréttardegi án viðbótagjalds. Um lagaleg áhrif slíkra birtinga er fjallað um í 29. gr. PCT sáttmálans.
 
Á heimasíðu WIPO er hægt að skoða sýnishorn af slíkum greiðslubeiðnum.


Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica