Faggildingaráætlun fjallar um faggildingu á tilteknu fagsviði. Faggilding er mat á hæfni til að vinna tiltekin verk og það sem skilgreinir faggildingaráætlun er staðallinn sem hæfnismatið miðast við ásamt sérkröfum fyrir fagsviðið sem um ræðir. Sérkröfur á tilteknu fagsviði koma fram í lögum, reglugerðum, stöðlum og öðrum kröfuskjölum.
Staðlar sem fjalla um samræmismat eru:
ÍST EN ISO/IEC 17020 Almennar reglur um starfsemi skoðunarstofa af ýmsum gerðum
ÍST EN ISO/IEC 17021 Almennar kröfur vegna stofnanna sem meta og votta stjórnunarkerfi
ÍST EN ISO/IEC 17024 Samræmismat - Almennar kröfur vegna stofnana sem votta hæfni starfsfólk
ÍST EN ISO/IEC 17025 Almennar kröfur um hæfni prófunar- og kvörðunarstofa
ÍST EN ISO 15189 Prófunarstofur í læknisfræði - Sérstakar kröfur um gæði og hæfni
ÍST EN 45011 Almennar kröfur vegna aðila sem reka vöruvottunarkerfi
ISAC / Faggildingarsvið Einkaleyfastofunnar starfar eftir staðlinum ÍST EN ISO/IEC 17011 Samræmismat - Almennar kröfur vegna faggildingarstofa sem faggilda samræmismatsstofur.
