Fréttir og tilkynningar
ISAC opnar nýja heimasíðu
2. mars 2009 mun Einkaleyfastofan og þar með ISAC, opna glænýja heimasíðu. Með nýrri síðu opnast ISAC möguleikar að miðla betur efni og upplýsingum sem varða faggildingu. Í upphafi má gera ráð fyrir að efni verði af skornum skammti en með tímanum er stefnt á að vefurinn geymi mikið og gott safn af upplýsingum tengdum faggildingu.
Ef einhverjir hafa hugmyndir um hvað mætti birta á vefnum sem tengist faggildingu þá er hægt að senda ábendingu þess efnis á tölvupóstfangið isac hjá isac.is
