Gæðamál
Einkaleyfastofan leggur metnað í að veita góða og faglega þjónustu. Gæðastjórnunarkerfi Einkaleyfastofunnar sem byggir á ISO 9001:2000 staðlinum gegnir þar mikilvægu hlutverki. Með virku gæðastjórnunarkerfi leitast Einkaleyfastofan við að uppfylla væntingar og þarfir viðskiptavina, hagsmunaaðila sem og starfsmanna með samræmingu og umbótum á starfi stofnunarinnar.
Í gæðastefnu Einkaleyfastofunnar er að finna nánari upplýsingar um stefnu og markmið stofnunarinnar í gæðamálum.
Viðskiptavinum og starfsfólki er bent á að skrá ábendingar og kvartanir hér. Ábendingar og kvartanir stuðla að umbótum á gæðastjórnunarkerfinu.
