Alþjóðasamstarf

 

Hugverkaréttur og vernd hugverka ráðast mjög af alþjóðlegu samstarfi og er Ísland aðili að mörgum alþjóðlegum samningum á þessu sviði. Með virkri þátttöku á alþjóðavettvangi gefst Einkaleyfastofunni kostur á að fylgjast með breytingum og hafa áhrif á þróun hugverkaréttar í framtíðinni.

Helstu alþjóðastofnanir á sviði hugverkaréttar sem Ísland er aðili að:

  • Alþjóðahugverkastofnunin (WIPO)
  • Evrópska einkaleyfastofnunin (EPO)
  • Nordic Patent Institute (NPI)

Alþjóðlegir samningar á sviði hugverkaréttar sem Ísland er aðili að:

Þá hefur Ísland sem aðili að Samningnum um alþjóðaviðskiptastofnunina (WTO) aðlagað lög hér á landi að ákvæðum Samningsins um hugverkarétt í viðskiptum (TRIPS). Ennfremur hefur Samningurinn um hið Evrópska efnahagssvæði ásamt viðbótum leitt til þess að ýmsar lagabreytingar hafa verið gerðar hér á landi til samræmis við tilskipanir og reglugerðir Evrópusambandsins.