Einkaleyfi á Íslandi

Nýnæmi, frumleiki, hæfni til framleiðslu

 

Einkaleyfi eru veitt fyrir tæknilegum uppfinningum. Með einkaleyfi er hægt að vernda tæknilega útfærslu á hugmynd. Ekki er hægt að vernda hugmyndina sjálfa heldur útfærslu hennar, s.s. búnað, afurð, aðferð eða notkun. Dæmi: Aðferð við framleiðslu matvæla, notkun á efni í framleiðslu á lyfi, búnaður s.s. fiskflokkunarvél.

Frumskilyrði fyrir því að hægt sé að fá einkaleyfi fyrir uppfinningu er að hún sé ný, frumleg og hæf til framleiðslu.

  • Nýnæmi: Uppfinning þarf að vera ný, ekki eingöngu á Íslandi heldur í heiminum öllum. Þannig má ekki vera búið að kynna uppfinninguna í ræðu eða riti áður en sótt er um einkaleyfi.
  • Frumleiki: Uppfinning þarf að vera verulega frábrugðin því sem þegar er þekkt, þ.e. lausnin á vandamálinu sem hún leysir má ekki liggja í augum uppi fyrir fagmann á sviðinu.
  • Hæfni til framleiðslu: Uppfinning þarf að vera hagnýtanleg í atvinnulífi, þ.e. það þarf að vera hægt að framleiða hana og selja. Dæmi um uppfinningar sem ekki eru hagnýtanlegar í atvinnulífi eru t.d. húsráð og hlutir sem krefjast handverks við framleiðslu s.s. fiðlur.

Umsókn um einkaleyfi á Íslandi skal skila til Einkaleyfastofunnar. Fylla þarf út umsóknareyðublað og leggja inn nákvæma lýsingu á uppfinningunni sem sótt er um vernd á, sjá nánar bækling um einkaleyfi.

Hér má nálgast umsóknareyðublað fyrir einkaleyfisumsókn á Íslandi og gjaldskrá.

Einkaleyfi í öðrum löndum

Einkaleyfi sem veitt eru af Einkaleyfastofunni gilda eingöngu á Íslandi. Ef vernda á uppfinningu erlendis er um nokkrar leiðir að ræða:

  • Leggja inn landsbundna einkaleyfisumsókn í hverju ríki fyrir sig
  • Nýta alþjóðlegt umsóknarferli ("PCT-umsókn") sem viðurkennt er af öllum helstu iðnríkjum heims
  • Sækja um evrópskt einkaleyfi sem getur tekið til flestra evrópuríkja.

Þá er hægt að nota fleiri en eina af þessum leiðum, þ.e. byrja má með landsbundna umsókn, en hefja PCT-ferlið innan árs, með forgangsrétt í landsbundnu umsókninni. Eftir að PCT-ferli lýkur, er hægt að yfirfæra þá umsókn til Evrópsku einkaleyfastofunnar (þessi leið er stundum nefnd Euro-PCT). Evrópskt einkaleyfi má svo staðfesta í flestum evrópuríkjum, m.a. á Íslandi.

Forgangsréttur

Hafi verið sótt um einkaleyfi hér á landi, er hægt innan 12 mánaða frá umsóknardegi að leggja inn umsókn sama efnis í öðru ríki og krefjast forgangsréttar frá upphaflegu umsókninni. Seinni umsókn telst þá lögð inn sama dag og sú fyrsta (s.k. forgangsréttardagur). Þannig helst sama dagsetning ef byrjað er að kanna viðbrögð við uppfinningunni með íslenskri umsókn áður en umsóknarferli erlendis er hafið. 




Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica