Rafræn skilríki

 

Rafræn skilríki frá Auðkenni

Á heimasíðu Auðkennis er hægt að sækja um rafræn skilríki á snjallkorti (plastkort í sömu stærð og debetkort með örgjafa). Til þess að kortið virki þarf umsækjandi að setja upp kortalesara og hugbúnað, sjá leiðbeiningar frá Auðkenni.  

 

Rafræn skilríki frá Evrópsku einkaleyfastofunni

Hægt er að sækja um rafræn skilríki á heimasíðu Evrópsku einkaleyfastofunnar (EPO). Skilríkin sem og kortalesari eru gjaldfrjáls en afhendingartími getur verið allt að mánuður. 

Skilríkið, sem er plastkort með örgjörva, er sent umsækjanda á það heimilisfang sem gefið er upp á umsóknareyðublaðinu. Með kortinu fylgir eyðublað til útfyllingar sem skal sent EPO. EPO sendir í kjölfarið PIN númerið sem er notað með kortinu. 

Með kortinu, fylgir kortalesari og Online Filing hugbúnaður á geisladisk (CD-ROM).   Upplýsingar um uppsettningu á rafrænu skilríki og hugbúnaðinum Online Filing er að finna hér. 

 

Rafræn skilríki frá Alþjóðahugverkastofnunni

Hægt er að sækja um rafræn skilríki á heimasíðu Alþjóðahugaverkastofunarinnar (WIPO). Um er að ræða svokölluð vefskilríki sem er mun takmarkaðra skilríki en þau sem EPO og Auðkenni bjóða. 

Þegar umsækjandi óskar eftir vefskilríki þarf hann einungis að veita upplýsingar um nafn og tölvupóst. Umsækjandi fær í kjölfarið upplýsingar um skilríkið í tölvupósti. 

Með rafrænu skilríki frá WIPO er einungis hægt að leggja inn PCT/IS umsóknir.


Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica