Patent Prosecution Highway – flýtimeðferð
„Patent Prosecution Highway“ (PPH) eða flýtimeðferð einkaleyfisumsókna er nýr valkostur fyrir umsækjendur, háður ýmsum skilyrðum. Yfirmarkmið PPH er að stytta afgreiðslutíma einkaleyfisumsókna á heimsvísu en mörg ríki eru með slíka samninga sín á milli.
Einkaleyfastofan hefur gert samkomulag um tilraunaverkefni er varðar slíka flýtimeðferð, annars vegar við Bandarísku einkaleyfastofuna og hins vegar við Japönsku einkaleyfastofuna. Markmiðið samkomulagsins er einkum að gera íslenskum fyrirtækjum kleift að flýta meðferð einkaleyfisumsókna sinna í Bandaríkjunum og í Japan þar sem afgreiðslutími er almennt mjög langur. Hið sama á við um umsóknir frá Bandaríkjunum og Japan hér á landi.
Samkomulagið felur það í sér að sé sótt um einkaleyfi í einu ríkjanna (fyrri stofnun), getur umsækjandi farið fram á flýtimeðferð í öðru ríki (seinni stofnun) með vísan til samkomulagsins. Skilyrði fyrir beiðninni er að sýnt sé fram á að fyrri stofnun hafi rannsakað sambærilega umsókn og metið einhverjar krafnanna einkaleyfishæfar. Hins vegar er síðari stofnun ekki skylt að taka til greina rannsókn fyrri stofnunar heldur er um það að ræða, að reynt er af fremsta megni að notfæra sér þá rannsóknarvinnu sem þegar hefur farið fram.
Samkomulag Íslands við Japan og Bandaríkin má sjá hér til hliðar.
Nordic Patent Institute sem Ísland er aðili að, hefur einnig gert samkomulag við ýmis ríki um PPH fyrir PCT-umsóknir sem Nordic Patent Institute hefur rannsakað, nánari upplýsingar um þetta er að finna á heimasíðu stofnunarinnar.
PPH er val umsækjandans og kostnaður við slíka meðferð er enginn á Íslandi.
Skilyrði fyrir beiðni um PPH
Eftirfarandi fjögur skilyrði þarf að uppfylla til þess að hægt sé að fara fram á PPH-flýtimeðferð:
-
Umsókn til seinni stofnunar þarf að vera landsbundin umsókn sem er sambærileg umsókn sem rannsökuð var hjá fyrri stofnun, t.d. byggð á forgangsrétti skv. Parísarsáttmálanum frá fyrri umsókn eða PCT umsókn sem vísar til þeirrar umsóknar sem lögð var inn hjá fyrri stofnun.
-
Fyrri stofnun hefur metið kröfur umsóknarinnar (eina eða fleiri) einkaleyfishæfar.
-
Allar kröfur umsóknar til annarrar stofnunar eru sambærilegar* kröfugerð þeirri sem fyrsta stofnun mat einkaleyfishæfa.
-
Seinni stofnun hefur ekki enn hafið rannsókn umsóknarinnar.
Eyðublöð til þess að fara fram á flýtimeðferð skv. PPH hjá Einkaleyfastofunni, má finna hér til hliðar.
Hvaða gögn þurfa að fylgja beiðni um PPH?
Leggja á inn beiðni um PPH til þeirrar stofnunar sem umsækjandi óskar eftir að fá flýtimeðferð hjá. Áður en slík beiðni er lögð inn, þarf umsækjandi að hafa sótt um landsbundið einkaleyfi hjá þeirri stofnun.
Beiðni um PPH hér á landi þarf að innihalda eftirfarandi skjöl:
- Útfyllt PPH umsóknareyðublað
- Afrit af bréfum er varða rannsókn fyrri umsóknar frá fyrri stofnun. Bréfin þurfa að vera á því tungumáli sem seinni stofnun leyfir.
- Afrit af þeim einkaleyfiskröfum sem fyrri stofnun hefur metið einkaleyfishæfar á því tungumáli sem seinni stofnun samþykkir.
- Útfyllta töflu sem sýnir samsvörun krafna
- Afrit af þeim mótögnum sem fyrri stofnun vísar í.
Ýmsar hliðar PPH
- Kostnaður umsækjanda við PPH meðferð á Íslandi, í Bandaríkjunum og í Japan er enginn.
- Meðhöndlunartími umsókna sem krefjast PPH meðferðar styttist mikið.
- Bréfaskiptum og samskiptum við einkaleyfastofnanir fækkar sem getur leitt til sparnaðar.
- Hafa verður í huga að beiðni um PPH meðferð er alls ekki ávísun á veitt einkaleyfi, stofnunum er í sjálfsvald sett hvernig þær nýta gögn sem fylgja með beiðni um PPH.
- Umsækjandi er bundinn af kröfugerð umsóknar hjá fyrri stofnun, ekki má breyta kröfugerð sem lögð er inn hjá seinni stofnun að neinu marki*. Á heimasíðum ríkjanna sem Ísland hefur gert samkomulag við, má finna nánari leiðbeiningar fyrir umsækjendur.
- Tímafrestir til þess að leggja inn beiðni um PPH eru gefnir upp á heimasíðum viðkomandi stofnana, almenna reglan er sú að leggja verður inn beiðnina áður en viðkomandi stofnun hefur hafið rannsókn.
*Með sambærilegar kröfur er almennt átt við að ekki megi vera búið að víkka út verndarsvið krafnanna sem lagðar eru inn hjá seinni stofnun í samanburði við þær kröfur sem fyrri stofnun hefur metið einkaleyfishæfar. Milli ríkja er nokkur munur á þessu. Í Bandaríkjunum er þetta túlkað þröngt, þannig þurfa kröfurnar að vera eins en í Japan má hins vegar bæta við aukakröfum hjá seinni stofnun en eftir sem áður má ekki víkka út verndarsviðið. Form krafna skiptir hins vegar ekki máli eða einhver munur vegna þýðinga milli tungumála.
