Þjónusta við viðskiptalífið
Nordic Patent Institute (NPI) tekur að sér að framkvæma rannsókn/leitir í einkaleyfagagnabönkum sem og greiningar fyrir einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir. Allar leitir og greiningar eru sérsniðnar með það í huga að mæta þörfum viðskiptavinarins.
Við rannsóknir og leitir hefur NPI yfir að ráða meira en 150 vel menntuðum og reyndum rannsakendum staðsettum hjá dönsku og norsku einkaleyfastofunum.
Sú leit sem er hvað algengust er nýnæmisrannsókn á uppfinningum. Markmið með nýnæmisrannsókn getur verið að fá svar við því hvort uppfinning sé ný, meta virði nýrrar vöru m.t.t. einkaleyfisverndar eða kanna hvort að grundvöllur sé fyrir innlögn einkaleyfisumsóknar. NPI gerir slíka leit á föstu verði sem er 7000 DKK. Nánari upplýsingar um nýnæmisrannsókn á uppfinningum má finna hér.
Jafnframt er hægt að óska eftir að NPI framkvæmi:
• Leit til stuðnings beiðni um hraðvirkari rannsókn í Bandaríkjunum
• Greiningu á frelsi til starfa (Freedom to operate)
• Greiningu á gildi einkaleyfis í eigu þriðja aðila
• Greiningu á gildi eigin einkaleyfis
• Greiningu á virði einkaleyfis fyrir sölu eða gerð nytjaleyfissamnings
• Greiningu á tæknisviði og stefnumótandi yfirsýn
• Greiningu á nýrri tækni og samkeppnisaðilum
• Greiningu fyrir innlögn andmæla
Framangreindar leitir/greiningar eru unnar samkvæmt tilboði þar sem fram kemur tími og kostnaður við verkið. Tímagjald er DKK 1050. Tilboð er sent viðskiptavini innan 48 stunda.
Niðurstöður berast milli tveggja og þriggja vikna hvað varðar greiningu á nýnæmi og gildi einkaleyfis sem og önnur stök verkefni en innan fjögra vikna hvað varðar greiningu á tæknisviði.
Rannsakandi er í samskiptum við viðskiptavin á meðan vinnu stendur. Jafnframt hefur rannsakandi samband eftir afhendingu á lokaskýrslu til að tryggja að komið hafi verið til móts við þarfir viðskiptavinarins.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu NPI http://www.npi.int/ en einnig er hægt að hafa samband við Grétar Inga Grétarsson, aðstoðarforstjóra NPI, í síma +45 43 50 85 00 eða með tölvupósti á netfangið Gretar.Ingi.Gretarsson@npi.int
