Alþjóðleg rannsókn
Nordic Patent Institute (NPI) er alþjóðleg stofnun sem Ísland, Danmörk og Noregur eru aðilar að. Stofnunin var samþykkt á þingi Alþjóðahugverkastofnunarinnar 2006, sem alþjóðleg rannsóknastofnun (ISA) sem annast alþjóðlega nýnæmis- og einkaleyfishæfisrannsókn fyrir Íslendinga, Dani og Norðmenn.
NPI hefur yfir að ráða meira en 150 vel menntuðum og reyndum rannsakendum staðsettum hjá dönsku og norsku einkaleyfastofunum. Íslenskir umsækjendur PCT-umsókna (alþjóðlegra umsókna) geta valið Nordic Patent Institue sem rannsóknastofnun fyrir umsókn sína. Kóðinn sem notaður er til að auðkenna Nordic Patent Institute í PCT-umsókn er XN.
Alþjóðleg nýnæmisrannsókn
Markmið með alþjóðlegri nýnæmisrannsókn er að rannsaka hvort að uppfinning sem alþjóðleg umsókn byggir á sé ný og frábrugðin því sem telst þekkt fyrir umsóknardag.
Með hliðsjón af þeirri rannsókn gefur NPI út alþjóðlega leitarskýrslu (ISR) almennt innan 15 mánaða frá forgangsréttardegi (7 mánaða ef ekki er krafist forgangsréttar) eða tveggja mánaða frá móttöku leitareintaks og er þá miðað við síðara tímamark. Á sama tími er gefin út skrifleg álitsgerð „written opinion“ þar sem fram kemur hvort að uppfinningin sé talin ný, frumleg og hagnýtanleg í atvinnulífinu auk þess er kannað hvort að umsóknin sé að öðru leyti í samræmi við sáttmálann.
Alþjóðleg forathugun á einkaleyfishæfi
Umsækjandi getur óskað eftir því að NPI gerir alþjóðlega forathugun á einkaleyfishæfi með því að leggja inn beiðni „demand“ þess efnis. Markmið með alþjóðlegri forathugun er ekki að samþykkja eða hafna veitingu einkaleyfis, heldur að fá álit á því hvort að uppfinning virðist vera ný, feli í sér frumleika og sé hagnýtanleg í atvinnulífinu. Jafnframt er kannaður skýrleiki krafna, lýsing og teikningar og hvort að kröfurnar eigi sér stoð í lýsingu.
NPI gefur út alþjóðlega forathugunarskýrslu um einkaleyfishæfi (IPRP) með niðurstöðum rannsóknar almennt innan 27 mánaða frá forgangsréttardegi. Skýrslan gefur umsækjanda góðan grunn til að meta hvort að líkur séu á að einkaleyfi verði veitt af tilnefndum aðildarríkjum.
