
Nordic Patent Institute er alþjóðleg stofnun sem Ísland, Danmörk og Noregur eru aðilar að. Hér er um nýjan valkost að ræða fyrir umsækjendur PCT-umsókna, en stofnunin annast m.a. rannsóknir á alþjóðlegum einkaleyfisumsóknum. Stofnunin er sett á stofn með það að markmiði að halda tækniþekkingu innan norðurlandanna og bjóða uppá hraða og góða þjónustu við rannsóknir á einkaleyfum, á samkeppnishæfu verði.
Stofnunin var samþykkt á þingi Alþjóðahugverkastofnunarinnar 2006, sem alþjóðeg rannsóknastofnun sem annast alþjóðlega nýnæmis- og einkaleyfishæfisrannsókn fyrir Íslendinga, Dani og Norðmenn. Stofnunin tók til starfa 1. janúar 2008.
Íslenskir umsækjendur PCT-umsókna (alþjóðlegra umsókna) geta valið Nordic Patent Institue sem rannsóknastofnun fyrir umsókn sína.
Nordic Patent Institute annast einnig rannsóknir á einkaleyfum fyrir fyrirtæki og stofnanir.
