Leit í gagnabönkum

Tugmilljónir skjala aðgengileg á netinu

 

Áður en umsókn um einkaleyfi er lögð inn er mikilvægt að umsækjandi kanni í gagnabönkum veitt einkaleyfi á viðkomandi tæknisviði. Slík rannsókn kann að leiða í ljós að uppfinningin sé þegar þekkt. Jafnframt getur rannsóknin komið að notum við ritun umsóknar, frekari þróun uppfinningar og greiningu samkeppnisaðila.

Á netinu má finna ýmsa gagnabanka með upplýsingum um einkaleyfi er veitt hafa verið í heiminum, t.d. gagnabanka Evrópsku einkaleyfastofunnar (EPO) Espacenet og gagnabanka Alþjóðahugverkastofnunarinnar (WIPO) Patent Scope. Í gagnabanka EPO Register Plus er hægt að skoða meðferð einstakra mála hjá EPO.

Einnig er hægt að leita til einkaleyfayfirvalda og umboðsskrifstofa um einkaleyfi sem sérhæfa sig í athugun á nýnæmi uppfinninga með leit í gagnabönkum.


Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica