Hvernig er sótt um?

Hvernig er sótt um?

 

Til þess að sækja um einkaleyfi á uppfinningu á Íslandi, þarf að leggja inn umsókn hjá Einkaleyfastofunni (ELS).  Umsókn getur verið

·         Á pappírsformi:  Hægt er að senda umsóknina með pósti, faxi eða afhenda hana beint hjá ELS.

·         Á rafrænu formi:  Sótt er í  gegnum kerfi sem kallast OLF og er að finna á heimasíðu ELS.  Til þess að hægt sé að nota það, þarf rafræna auðkenningu sem hefur verið samþykkt af ELS.

Ekki er hægt að sækja um með því að senda inn umsókn í tölvupósti þar sem sá sendingarmáti telst ekki nægilega öruggur.  Umsóknir eru í upphafi ferlisins trúnaðarmál sem mikilvægt er að komi ekki fyrir sjónir óviðkomandi.