Supplementary International Search frá 1. janúar 2009
Supplementary International Search frá 1. janúar 2009
Alþjóðhugverkastofnunin (WIPO) hefur samþykkt breytingar á reglugerð með Samstarfssáttmálanum um einkaleyfi (PCT) sem heimila viðbótar-nýnæmisrannsókn (Supplementary International Search) frá 1. janúar 2009.
Samkvæmt breytingunni geta umsækjendur óskað eftir einni eða fleiri viðbótar-nýnæmisrannsókn frá tilgreindum alþjóðlegum rannsóknarstofnunum gegn tilsettu gjaldi.
Með viðbótar-nýnæmisrannsókn draga umsækjendur úr líkum á að nýtt nýnæmishindrandi efni/upplýsingar komi fram eftir að landsbundinn fasi hefst. Jafnframt eru auknar líkur á að nýnæmishindrandi efni á fleiri tungumálum komi í ljós.
Alþjóðlegu rannsóknarstofnanirnar ákveða umfang og takmarkanir á þeirri viðbótar-nýnæmisrannsókn sem þær bjóða.
Beiðni um viðbótar-nýnæmisrannsókn verður að vera lögð inn hjá WIPO innan 19 mánaða frá forgangsréttardegi. Tilskilið gjald ber að greiða til WIPO innan mánaðar frá því að beiðni berst. Viðbótar-nýnæmisrannsóknin er gerð á PCT umsókninni eins og hún var lögð inn. Ekki er hægt að óska eftir því að sú alþjóðlega rannsóknarstofnun sem framkvæmir aðal-nýnæmisrannsóknina framkvæmi jafnframt viðbótar-nýnæmisrannsóknina.
Heimilt er að taka við beiðni um viðbótar-nýnæmisrannsókn frá 1. janúar 2009.
Þær alþjóðlegu rannsóknastofnanir sem stefna að því að veita viðbótar-nýnæmisrannsókn frá 1. janúar 2009 eru:
Sænska einkaleyfastofan (Swedish Patent and Registration Office)
Rússneska einkaleyfastofnunin (Federal Service for Intellectual Property, Patents and Trademarks (Russian Federation)).
