Samstarf ESB og EPO

Einkaleyfi - Samstarf ESB og EPO

 

Lengi hefur verið að því stefnt að koma á fót samræmdu kerfi við veitingu einkaleyfa og sérhæfðum einkaleyfadómstól innan Evrópusambandsins (ESB) og aðildarríkja Evrópska einkaleyfasamningsins (EPC). Sú hindrun sem lengi vel stóð í vegi fyrir því var hvaða tungumál skyldi nota. Tillögur um að franska, enska og þýska, tungumál Evrópsku einkaleyfastofunnar (EPO), yrðu aðalmál hlutu ekki hljómgrunn allra ríkja og í desember 2010 var ákveðið að hverfa frá þessum áformum með öllu. Stuttu síðar lögðu þó tólf ríki ESB fram tillögu um sérstakt samstarf (e. Enhanced cooperation), með vísan til ákvæðis í sáttmála sambandsins, sem heimilar ríkjum innan þess að stuðla að framgangi einstakra mála ef að samstarfinu standa níu ríki eða fleiri. Evrópuþingið (e. European Parliament) lagði blessun sína yfir samstarfið þann 15. febrúar 2011 og alls hafa 25 ríki af 27 sameinast um þessa leið, Ítalía og Spánn sitja hjá. Fyrirhugað var að ríki utan ESB myndu eiga þess kost að gerast aðilar að samstarfinu, auk þess sem ætlunin var að fyrirtæki í aðildarríkjum utan samstarfsins myndu geta nýtt sér hið samræmda einkaleyfakerfi.

Áður en viðræðum var slitið í árslok 2010 hafði ráð Evrópusambandsins (e. Council of the European Union) beint þeirri spurningu til Evrópudómstólsins um hvort fyrirhugaður samningur milli ESB og aðildarríkja EPO, sem ætlað var m.a. að koma á fót sameiginlegum einkaleyfadómstól aðildarríkja samstarfsins samræmdist löggjöf Evrópusambandsins. Niðurstaða dómstólsins var sú, sbr. mál nr. 1/09 frá 8. mars 2011, að svo væri ekki og voru helstu rökin þau að lögsaga yfir málum varðandi Evrópueinkaleyfi og þar með túlkun Evrópureglna á því sviði yrðu með þeim hætti færð frá Evrópudómstólnum undir sjálfstæðan, alþjóðlegan dómstól. Þrátt fyrir þetta álit dómstólsins var samstarfi ríkjanna 25 ýtt úr vör þann 10. mars 2011, með það fyrir augum að komast að niðurstöðu um dómstólaskipan sem samræmdist fyrrnefndu áliti.

Um miðjan apríl 2011 voru tvær tillögur að reglugerðum um útgáfu evrópsks einkaleyfis lagðar fram og taka þær annars vegar á umsóknarferli og gildissviði, hins vegar á því hver tungumál málsmeðferðar og síðar veitingar skuli vera. Þær eru nú, ásamt þeirri tillögu sem fram kom í júní 2011 um dómstólaskipan, til meðferðar innan ráðsins.

Í tillögu að reglugerð um útgáfu svæðisbundins evrópsks einkaleyfis (e. European Patent with Unitary Effect) er gert ráð fyrir því að umsóknarferli verði í höndum EPO með sama hætti og verið hefur skv. EPC. Sérstaklega verður þó að óska eftir svæðisskráningu í aðildarríkjum samkomulagsins á umsóknarstigi, sem taka mun gildi eftir birtingu tilkynningar um veitingu einkaleyfisins. Um verður því að ræða valkost sem standa mun samhliða hefðbundnu ferli. Eftir veitingu er ætlunin að skráningunni verði eftirleiðis við haldið, hún framseld, afturkölluð eða felld úr gildi með einni aðgerð sem hefur áhrif í öllum aðildarríkjum samstarfsins.

Í drögum að reglugerð ráðsins um þýðingar er gert ráð fyrir að tungumál málsmeðferðar hjá EPO verði notuð á þann veg að einkaleyfið verði veitt á einu þeirra en kröfurnar þýddar á hin tvö. Eftir birtingu er ekki gert ráð fyrir frekari þýðingum, nema upp komi ágreiningsmál. Þá verður gert ráð fyrir sérstökum þýðingum tímabundið eða þar til vélræn þýðing einkaleyfa verður að veruleika.

Hin nýja tillaga að dómstólaskipan breytir að nokkru því sem stefnt var að í fyrstu og samkvæmt niðurstöðu fundar ráðsins þann 29. september 2011 er nú útilokað að ríki utan ESB verði aðilar að samstarfinu. Önnur aðildarríki EPC en þau sem eru í ESB geta því ekki tekið þátt í þessu samstarfi gangi tillagan í gegn. Til að koma til móts við álit Evrópudómstólsins er gert ráð fyrir því að aðildarríki ESB standi að sérstökum samningi um stofnun einkaleyfadómstóls, sem jafnt er hægt að bera undir mál vegna sameinaðs einkaleyfis sem og vegna annarra evrópskra einkaleyfa sem EPO veitir. Áfram er gert ráð fyrir fyrsta dómstigi (e. Court of First instance), áfrýjunardómstól (e. Court of Appeal) og skráningarstofu (e. Registry). Unnt verður að beina spurningum til Evrópudómstólsins til forúrskurðar og tekið er sérstaklega fram að dómstóllinn muni heyra undir og framfylgja löggjöf sambandsins.

Frekari upplýsingar:

Listi yfir helstu skjöl til 13. apríl 2011

Álit Evrópudómstólsins nr. 1/09, frá 8. mars 2011

Endurskoðuð drög að samkomulagi um stofnun einkaleyfadómstóls, 12. september 2011

Fréttatilkynning ráðsins, fundir 29. og 30. september 2011


Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica