Hvað er einkaleyfi og til hvers?
Einkaleyfi vernda tæknilega útfærslu á hugmynd, s.s. búnað og afurð en einnig aðferð eða notkun. Með einkaleyfi sem Einkaleyfastofan veitir, er hægt að vernda uppfinningar í allt að 20 ár. Einkaleyfaréttur sá sem settur er í einkaleyfalögum (sjá lög um einkaleyfi nr. 17/1991 með síðari breytingum) gefur eiganda rétt til þess að banna öðrum að framleiða, flytja inn og selja uppfinningu sem vernduð er með einkaleyfi.
Einkaleyfi veitir einkaleyfishafa forskot á samkeppnisaðila þar sem hann fær einkarétt á því að nota uppfinningu sína í ákveðinn tíma. Einkaleyfi hvetur þannig samkeppnisaðila til að þróa nýjar lausnir á vandamálum. Þá er einkaleyfiseign fyrirtækja meðal þess sem fjárfestar horfa til þegar meta á verðmæti fyrirtækja. Einkaleyfi veita ekki aðeins vernd, heldur eru þau einnig hvatning fyrir uppfinningamenn með því að tryggja þeim viðurkenningu og fjárhagslegan ávinning. Með því að sækja um einkaleyfi gerir uppfinningamaður uppfinningu sína opinbera og stuðlar þannig að dreifingu tækniþekkingar í heiminum.
Almennar upplýsingar um einkaleyfi
Bæklingur Einkaleyfastofunnar um einkaleyfi, á íslensku (til þess að skoða bæklinginn þarf forritið Acrobat Reader frá Adobe sem hægt er að fá á heimasíðu Adobe).
Handbók uppfinningamannsins, á íslensku.
